24.1.2024 | 15:28
Spilar Katrín Ólsen Ólsen?
Einkennilegt var þegar Sjálfstæðismenn höfnuðu reynsluboltanum og mannasættinum Haraldi Benediktssyni fyrir nýliða á þingi. Það var þó gert í prófkjöri og þar með á lýðræðislegan hátt.
Enn undarlegra er nú þegar Svandís Svavars stígur til hliðar, að ganga freklega fram hjá einum reynslumesta þingmanni V.G. og harðduglegri í þokkabót, Bjarkeyju Ólsen!
Katrín Jakobs telur sig betur til þess fallna að bæta matvælaráðuneytinu á sig en að spila þann einfalda Ólsen Ólsen að láta Ólsen taka við!
Þar er hún farin að minna á fyrirrennara sinn og stofnanda V.G. hinn "ómissandi" Steingrím J. sem nú er reyndar blessunarlega horfin úr öllum ráðuneytum. (Að ég held).
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.